• Forsíða
    • Fréttir
    • Starfsmenn
    • Myndir
    • Hárið þitt
    • Shampó

Fermingargreiðslur

Við á mojo bjóðum upp á fermingargreiðslur. Hjá okkur eru verðin ekkert búin að hækka, til að koma til móts við fólk í dag. Með hverri fermingagreiðslu er innifalið 15-30 mín spjall með léttri prufugreiðslu.

 Sumir vilja nota prufugreiðsluna fyrir myndatöku, jafngildir það 2* greiðslu, en við rukkum aðeins 2500-3500 fyrir fullbúna prufugreiðslu með fermingar greiðslunni:

1: Fermingargreiðsla innifalið spjall og létt prufa= 8000kr (ef hún tekur ekki meira en 45 mín)
2: Fermingargreiðsla innifalið spjall og full prufugreiðsla= 10500-11500 (ef hún tekur ekki meira en 45 mín)
Allar greiðslu fara einnig eftir hversu langan tíma þetta tekur og hversu mikið af spennum/efnum er notað í hvert höfuð. Þessi verð eru samt þau allra algengustu hjá okkur fyrir létta fermingargreiðslu.
Pantið tímanlega og fáið ráðleggingar.
Með bestu kveðju
Starfsfólk mojo

Árshátíðir

Nú er aðal árshátíðar tímabilið byrjað. Að því tilefni viljum við bjóða okkar viðskiptavinum hópatilboð í make up og greiðslu. Komiði saman og eigið góða stund áður en farið er á ballið. Erum með frábært starfsfólk sem er mjög fjölbreytt m.a. í greiðslum fyrir allskonar tilefni. Sminkurnar eru þær Tinna Empera útskrifuð úr M.School, og Rakel, hún vinnur sem sminka m.a. á Sýn og í Idolinu.Hringdu í okkur og láttu okkur gera tilboð í þinn hóp.

Tökum á móti littlum og stórum hópum. Allt frá 4-16 manns.

Pantaðu tímalega

Með bestu kveðju

Starfsfólk Mojo

Jólin Jólin Jólin.....

Nú fer að líða að jólum. Við erum komin í gírinn fyrir jólin og viljum óska öllum okkar kúnnum góðs undirbúnings. Einnig minnum við á að jólaklippingar eru að hefjast á fullu. Viljum við minna ykkur á að panta tímanlega í jólaklippinguna, svo enginn fari í jólaköttinn. Skiljum ástandið eftir heima. Við verðum í hátíðarskapi og tökum á móti öllum gömlum sem nýjum kúnnum með bros á vör. Hlökkum til að sjá ykkur.

Kveðja stafsfólk Mojo

Haustið er komið!

Mojo var með tískusýningu á menningarnótt ásamt Moods of Norway, Auður Design, Sonja Bent, Selma Ragnars og Lykkjufall.

Sýningin Á Jaðri Laugarvegs var haldin á Klappparstíg/Laugarvegi við góðar undirtektir og voru Rottweilerhundarnir að rappa grimmt undir.

Hér má sjá brot af sýningunni

 Tískusýningin Á jaðri Laugarvegs!

 



mojo.is er vefsíða hárgreiðlustofunnar mojo sem er staðsett í Templarasundi 3. Hérna er að finna ýmsar upplýsingar um stofuna s.s. verð, vörur, opnunartíma, starfsmenn ofl. Hérna verður einnig hægt að panta tíma á stofunni, nálgast linka á ýmsar athyglisverðar síður tengdar tísku og fegurð.

Stofan er opin mánudaga-föstudaga 9-18 og laugardaga 10-14 opnunar tímar geta þó verið sveiganleigir eftir samkomulagi við viðkomandi fagmann.

mojo. monroe - 562 6161 - Templarasundi 3 - mojo@mojo.is - Keyrir á WebEd Pro frá hugsandi Mönnum: Hugsandi Menn